Erum loks komin með nýja heimasíðu fyrir fyrirtækið okkar, Lagnadeildin, sem hefur áratugareynslu í öllu sem viðkemur pípulögnum af öllum gerðum fyrir hús, sumarbústaði og fyrirtæki.
Þegar kemur að breytingum og lagfæringum í gömlum og nýjum húsum erum við rétta fólkið til þess að tala við.
Hjá okkur eru engin vandamál , aðeins verkefni sem þarf að leysa.
Við tökum að okkur stór og smá verkefni. Viðskiptavinir okkar eru númer eitt og við leggjum okkur fram við að leysa öll vandamál á sem hagkvæmastan hátt.
Á þessari heimasíðu eru allar helstu upplýsingar og fréttir um Lagnadeildina.
Endilega deilið upplýsingum um okkar fyrirtæki á Facebook til ykkar vina.
Kveðja Ágúst